ICEE.Space CHILL-ICE II 2022: Credit: Hope Byrd

Rannsóknarhópur Chill-ICE á vegum ICEE Space (áður EuroMoonMars) hefur nú lokið geimfaraþjálfun í Stefánshelli í samstarfi við Space Iceland. Verk­efnið er hluti af hí­býla­hönnun fyrir tunglið og Mars en Ís­land þykir heppi­legur staður fyrir til­raunina því hér er að finna helli sem á að svipa til þeirra sem eru á tunglinu. Vegna hættu á að verða fyrir loft­steinum og vegna mikillar geislunar er ekki talið ráðlegt að vera á yfir­borði tunglsins í lengri tíma, því gætu hellar á tunglinu og Mars verið á­kjósan­legri fyrir hí­býli og rann­sóknar­stöðvar.

Þetta er í þriðja sinn sem hópurinn kemur hingað til lands í samstarfi við Space Iceland en árið 2020 kom hópurinn til Íslands í forathugun og fyrsta stig rannsókna fór fram í fyrra sumar. CHILL-ICE II sem fór fram nú í ágúst er ítarlegri rannsókn en í fyrra þar sem gerð er tilraun til að þjálfa lengri veru á Tunglinu eða Mars þar sem geimfararnir gera meira en aðeins að lifa af. Chill-ICE I, sem fór fram 2021, var þannig herming á fyrstu klukkustundum og dögum geimfara en CHILL-ICE II skoðar dagana og vikurnar eftir að híbýli er risið og geimfararnir þurfa að sinna sínum daglegu störfum.

Hópurinn saman stendur af rannsakendum frá Hollandi, Póllandi, Bretlandi, Indlandi, Ítalú, Ástralíu, Bandaríkjunum og Spáni. Bakvið CHILL-ICE verkefnið er fyrirtækið ICEE SPACE, frumkvöðlafyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknun, þróun og tilraunum fyrir áframhaldandi könnun mannkyns á geimnum.

Nánari upplýsingar veitir Marc Heem­skerk, geimjarð­fræðingur og einn vísinda­manna rann­sóknar­hópsins, í síma +31631313439 (virkar á WhatsApp) eða í tölvupóst: marc@chill-ice.com. Hópurinn er í Reykjavík sem stendur ef áhugi er á viðtalið.

Aðkoma Space Iceland er fyrst og fremst stuðningur og ráðgjöf líkt og stendur öllum vísindahópum, fyrirtækjum og stofnunum með tengsl við vaxandi geimiðnað til boða. „Space Iceland óskar ICEE SPACE til hamingju með velheppnaðan rannsóknarleiðangur til Íslands. Það er, eins og alltaf, mikill heiður fyrir Space Iceland að koma að verkefnum sem þessum. Space Iceland var stofnað með þann eina tilgang að ýta undir þátttöku Íslands í geimvísindum og auka tæknitilfærslu geimvísinda- og tækni hér á landi. CHILL-ICE hefur vakið athygli um allan heim. Þar á meðal á Lunar and Planetary Science Conference 2021,“ sagði Atli Þór Fanndal, framkvæmdastjóri Space Iceland í tilefni þjálfunarinnar.

Myndir frá starfi Space Iceland og rannsóknum ICEE SPACE má sjá finna hér að neðan:

  1. Rannsóknarleiðangur ágúst 2022 CHILL-ICE II 2022: Credit: Hope Byrd: https://photos.app.goo.gl/4xtgA4raFXuiVVvv9
  2. Almennar myndir frá starfi Space Iceland: https://photos.app.goo.gl/vhrvQKAD2w3LuaYr9
  3. CHILL-ICE 2020 – Credit: CHILL-ICE team (Marc Heemskerk, Charlotte Pouwels, Eibhlin Downes, Tom van Renterghem): https://photos.app.goo.gl/yPHcimzG3qihkcYD6
  4. CHILL-ICE I 2021 / SPACE ICELAND/EMBLA ÓÐINSDÓTTIR: https://photos.app.goo.gl/ksp5JeyxvHnrfAwm9

Comments are closed